Vefsíðan sundlaugar.is

Vefsíðan sundlaugar.is var stofnuð árið 2008 en við tökum við rekstrinum árið 2015.  Vefsíðan er með upplýsingar um flestar sundlaugar á Íslandi. Þar birtum við upplýsingar um opnunartíma, verð, ljósmyndir af sundlauginni ásamt lýsingu.

Vefurinn treystir á upplýsingar frá rekstraraðilum sundlauga og birtum við alltaf opnunartíma fyrir jól, páska og flesta aðra frídaga eftir því sem þær berast okkur.

Hér að neðan má sjá nokkrar ljósmyndir af íslenskum sundlaugum.